Viking
Sushi

Sigla · Njóta · Smakka

Skoða
Skrunaðu niður til að lesa meira
Friðrik
Hvítv og kross
Prjón voð
Viking Sushi

Hvað er Viking Sushi?

Einstök náttúruupplifun

Við siglum frá Stykkishólmi að nokkrum af hinum óteljandi eyjum Breiðafjarðar með þeirra ótrúlegu bergmyndunum og fjölbreytta fuglalífi. Horfðu á ferskt sjávarfangið dregið beint upp af hafsbotni, þar sem þér gefst einstakt tækifæri til að smakka hörpudisk og ígulkers hrogn mínútum eftir að það hvíldi á hafsbotni. Njóttu ferskasta sjávarfangs sem völ er á, með möguleika á ísköldu hvítvíni.

Ævintýri sem tengist fjórum skilningarvitunum þínum

01

Sjón

Fuglalíf, bergmyndanir, stórkostlegt náttúrufar, lífríki sjávarbotns Breiðafjarðar.

02

Hljóð

Sögur, fróðleikur, fuglasöngur.

03

Snerting

Meðhöndlaðu krabba, ígulker, hörpudiska, beitukónga og krossfiska.

04

Bragð

Ferskasta sjávarfang sem völ er á. Stjörnurnar eru hörpudiskur og ígulkerja hrogn.

Særún
Særún

Skipið

Særún

Særún er sterkbyggt skip, smíðað í Noregi. Skipið var flutt til Íslands og fór í umfangsmiklar breytingar þar sem það var sérhannað fyrir þessar siglingar. Hlýtt og þægilegt skip með pláss fyrir alla – hvort sem er inni eða út á þilfari.

Lengd

28 m

Farþegar

140 gestir

Breidd

9 m

Vélar

2 aðalvélar

Bókaðu Viking Sushi siglingu í dag